-
March's best music from across the MAP
[+ Show ]
For You, Forever is the third single from 1860's self-released debut album Sagan. Drawing inspiratio...For You, Forever is the third single from 1860's self-released debut album Sagan. Drawing inspiration from bands such as Fanfarlo and The Avett Brothers, the song has a modern folkish vibe to it, with small-town sentiments featuring heavily in the lyrics. The song was recently included in the short documentary Íslander by Grasshopper Films.
-
1860 Live in Reykjavik
[+ Show ]
This summer my best friend and I visited Iceland. Before our journey, we researched this very small ...This summer my best friend and I visited Iceland. Before our journey, we researched this very small and very interesting country. We talked to locals and former visitors and the thing they all said was that the music scene in Reykjavik was unlike any other place in the world. Music is an essential part of the paradoxes of Icelandic culture, they said. True to their words, every store, café, restaurant, and public place we passed through had either live or streamed music playing at a comfortable level and just about all of it was by Icelandic musicians. We met countless people who were in bands or who were solo musicians; even the guest house where we stayed has its own music label.
One evening, when the sun was still quite high in the sky, we went to Café Flora in the Reykjavik Botanical Gardens for a free concert. This is where we saw our first live performance by an Icelandic band. 1860 is an indie band based in Reykjavik that formed last year as a side-project of The Telepathetics. They are a trio—Ottar, Hlynur and Kiddi—who sport a rotating cast of guest musicians. Their harmonies are stellar; they play a number of you-don’t-see-that-everyday instruments like the electric mandolin and the glockenspiel. Also, they pass instruments between one another from song-to-song; evidence of their versatility. This versatility lends itself nicely to 1860’s eclectic musical style. We heard echoes of The Beatles in the harmonies of “Money”; of Parisian music in the accordion-inspired “Memory”; of indie dance in their hit single “Snaefellsnes”; and even American country in their twangy “Artificial Daylight”. Like other Icelandic musicians such as Björk and Sigur Rós, they take inspiration from a broad array of musical traditions and meld them into their own unique style.
However, unlike Björk and Sigur Rós, this band is relatively unknown outside of Iceland. They perform all over their native land and their single, “Snaefellsnes” is featured on the State Icelandic radio station, but they are ready to go international. This November they released their debut album, Sagan, world-wide and they are planning a slew of gigs abroad. They titled their EP Sagan because as they told me, “Sagan means ‘the story’ in Icelandic and also as a tribute to [the] late Carl Sagan. We are all science nerds.”
After the show at the Botanical Garden a local told me that not only is the music scene vibrant and ever-present on the streets and in the bars and cafes of Reykjavik, but there are also an incredible number of free concerts by well-known acts like Sigur Rós and Björk. During the Winter months, when the country is in perpetual darkness, the number of free live performances skyrockets--as an ode to solidarity and power of music carry a country through darkness. I was lucky to see 1860 perform during the Summer months—the time of the midnight sun—when the country opens up for warm weather and visitors like me.
-
1860 - Snæfellsnes
[+ Show ]
1860 are an Icelandic quartet of indie folkers who blew me away with their track “Snæfellsnes”.
S...1860 are an Icelandic quartet of indie folkers who blew me away with their track “Snæfellsnes”.
Sure, I don’t speak Icelandic, but its nurturing tones would go well with snus, smoking a pipe, riding a bicycle in the snow or playing in sprawling green fields.
Imagine Simon and Garfunkel, Mumford and Sons and Kings of Convenience got together and imbibed their knowledge and finesse into other individuals, and you get an idea of both the sound and talent of the group.
Have a listen or download it here - I guarantee its the best song you’ll hear this week or your money back.
-
1860
[+ Show ]
Athygli Rjómans var vakin á nýrri og einstaklega spennandi íslenskri sveit sem kallar sig 1860 en hú...Athygli Rjómans var vakin á nýrri og einstaklega spennandi íslenskri sveit sem kallar sig 1860 en hún spilar melódískt og upphefjandi þjóðlagapopp í hæsta gæðaflokki. Meðfylgjandi eru nokkur lög sem sveitin hefur sett á Youtube og þó gæðin séu ekki eins og best væri á kosið, ætti það ekki að fara fram hjá neinum sem á hlíðir, að hér eru á ferð afar hæfileikaríkir ungir menn sem tónlistaráhugamenn ættu að fylgjast vel með á næstunni.
-
Á leið til New York
[+ Show ]
Á leið til New York
Hljómsveitin 1860 hefur vakið nokkra athygli fyrir þjóðlaga-skotna popptónlis...Á leið til New York
Hljómsveitin 1860 hefur vakið nokkra athygli fyrir þjóðlaga-skotna popptónlist sína undanfarin misseri. Hljómsveitin hefur ekki verið lengi starfandi en er samt sem áður nú á leið til New York til fundar við alþjóðlegt útgáfufyrirtæki. Hafa strákarnir í bandinu verið duglegir við að vekja athygli á sér á netinu og hefur það skilað sér með þessum árangri.
-
1860 að meikaða fyrir tilstilli YouTube?
[+ Show ]
Hljómsveitin 1860 hefur komist að samkomulagi við Gravitation Records í Bandaríkjunum um útgáfu óven...Hljómsveitin 1860 hefur komist að samkomulagi við Gravitation Records í Bandaríkjunum um útgáfu óvenjulegrar stuttskífu núna í haust en í tilkynningu í dag segir að sveitinni hafi verið boðið til New York nú á dögunum í kjölfar myndbanda sem vöktu athygli á videovefsíðunni Youtube.
Gravitation Records, sem m.a. hefur séð um umboðsmennsku fyrir The Tallest Man on Earth, ætlar að gefa út og dreifa stuttskífu með 1860 á Bandaríkjamarkaði sem mun bera einkenni þeirrar tafarlausrar og hrárrar sköpunar sem á sér stað á internetinu.
1860 spilar frumsamið alþýðupopp og gaf nýlega út lagið Snæfellsnes sem hefur fengið talsverða spilun í útvarpi. Hljómsveitin hefur lokið upptökum á 13 laga breiðskífu, Sagan, sem mun koma út á Íslandi í júlí og er ætlunin að fylgja þeirri útgáfu með tónleikahaldi allt frá Patreksfirði til Hornafjarðar. Sveitina skipa Hlynur Hallgrímsson, Kristján Hrannar Pálsson og Óttar Birgirsson og spilar þeir jöfnum höndum á gítar, mandólín, píanó, kontrabassa, stóla, gsm-síma og ýmislegt annað sem er nærri hverju sinni. Tónlistin er undir talsverðum áhrifum frá þjóðlagapoppi og öðru popprokki eins og Spilverki Þjóðanna, Fleet Foxes, Mumford and Sons, Arcade Fire, Belle & Sebastian og fleirum. Viðtal við piltanna um tónlistina og framtíðina mun birtast í Monitor næsta fimmtudag.
-
Að skófla eða deyja
[+ Show ]
Hvenær hóf hljómsveitin 1860 göngu sína?
Við erum búnir að vera starfandi mjög stutt í rauninni.
...Hvenær hóf hljómsveitin 1860 göngu sína?
Við erum búnir að vera starfandi mjög stutt í rauninni.
Hljómsveitin er stofnuð í október 2010. Þetta var bara
þannig að við vorum með nokkur lög og við spiluðum á
einhverjum tónleikum í byrjun október og hljómsveitin
varð eiginlega bara til svona viku áður.
Hvaðan kemur nafnið?
1860 er árið sem fyrsta hljóðupptakan var gerð og okkur
langaði í eitthvað þægilegt nafn. Maður veit aldrei hvað
maður á að skíra hljómsveitir þannig að við tókum þetta
nafn upp. Okkur fannst líka voða flippað að vera með ártal
sem nafn.
Þið hafið sem sagt engin tengsl við fótboltaliðið 1860
Munchen?
Nei, en það er mjög skemmtilegt að segja frá því að við
erum með allnokkra gutta á Facebook-síðunni sem eru
aðdáendur okkar og eru með 1860 Munchen skráð sem
uppáhaldslið og hafa væntanlega bara fundið okkur fyrir
algera tilviljun.
Fyrsta breiðskífan ykkar kemur út í júlí. Við hverju má fólk
búast í sambandi við hana?
Það má bara búast við laufléttu alþýðupoppi. Sumarlegum
lögum og svo eru einhver sem eru samin yfir veturinn
þannig að þetta eru eiginlega bara allar árstíðirnar. Hún
heitir „Sagan“ og á henni verða 13 lög. Breiðskífan kemur
út í júlí og síðan er planið að það komi út stuttskífa í
Bandaríkjunum í haust.
Þið syngið einhver lög á ensku og ætlið svo að gefa út
stuttskífu í Bandaríkjunum. Er útrás í augsýn?
Við vorum eiginlega ekkert að pæla í því upphaflega.
Stefnan okkar hefur verið að henda nýjum lögum beint
inn á YouTube. Við vorum búnir að henda inn nokkrum
þegar það var haft samband við okkur að utan. Það var
herramaður sem hafði séð okkur á netinu og vildi fá að
forvitnast um hvort við værum að pæla í útgáfu erlendis.
Síðan hringdi hann og spurði hvort við værum lausir í júní
og flaug okkur síðan út til sín.
Á plötunni er að finna hið grípandi lag, „Snæfellsnes“.
Hefur lagið verið flutt á Snæfellsnesi?
Nei, við erum eiginlega sárir yfir því að það hafi ekki verið
hringt í okkur frá ferðamálasjóði Snæfellsness. Við eigum
það alveg inni að spila á einhverri árshátíð, ég held að það
sé bara skrifað í stjörnurnar.
Er satt að lagið sé samið eftir að þú varðst nánast úti uppi
á jöklinum í snjóbrettaferð?
Já, við vorum nokkrir svakalegir töffarar sem fórum
sérlega illa útbúnir á Spacewagon upp á jökul. Á
bakaleiðinni voru vélsleðadúddar búnir að skemma veginn
svo við þurftum að grafa nýjan veg. Við vorum þarna í 4-5
tíma þangað til okkur fannst við vera að deyja.
Við vildum ekki vera dúddarnir sem hringdu í
björgunarsveitina og svo yrði daginn eftir í blöðunum:
„Fjórir illa útbúnir menn urðu sér að voða uppi á
jökli“. Síðan þegar það var loks ákveðið að hringja á
björgunarsveitina, þá var eini gemsinn sem var meðferðis
batteríslaus. Þannig að það var bara að skófla eða deyja.
Hvert væri draumaupphitunargiggið?
Fyrir Fleet Foxes. Þeir eru svona nánast einir og
óstuddir í því að koma með svona alvöru endurvakningu
alþýðupoppsins frá um 1960. Ef það væri íslensk
hljómsveit, þá væri nú ótrúlegt ef maður myndi nú ná að
hita upp fyrir Spilverkið úr því að þau eru að koma aftur
saman.
Hvaða ætlar hljómsveitin sér í sumar?
Að spila sem mest í bænum og síðan ætlum við að
spila sem mest úti á landi. Við erum að vísu bara búnir
að bóka tvenna tónleika en óskum eftir fleirum.
-
Syngja um háskaför á Snæfellsjökul
[+ Show ]
Nýverið sendi hljómsveitin 1860 frá sér sitt fyrsta lag til spilunar í útvarpi og hefur lagið fengið...Nýverið sendi hljómsveitin 1860 frá sér sitt fyrsta lag til spilunar í útvarpi og hefur lagið fengið talsverða spilun á Rás 2. Hljómsveitin sækir nafn lagsins til Vesturlands og fjallar um ferðalag á Snæfellsnes, og heitir lagið einfaldlega „Snæfellsnes”. Blaðamaður mælti sér mót við sveitina áður en þeir fóru á æfingu en þeir undirbúa nú útgáfu stuttskífu í Bandaríkjunum auk þess sem þeir hafa hug á að spila víðsvegar um landið í sumar. „Við erum búnir að spila saman í um 11 ár, ég og Hlynur,” segir Óttar G. Birgisson meðlimur sveitarinnar en ekki er hægt að segja að hann spili á eitthvað ákveðið hljóðfæri. Hlynur Hallgrímsson sér hinsvegar um sönginn að mestu leyti og spilar á ýmis konar hljóðfæri líkt og Kristján Pétursson. „Við vorum í rokkbandi en vorum ekki mjög mikið að semja rokk. Þegar sú sveit hætti fengum við Kristján til liðs við okkur, aðallega því hann er góður á harmonikku og sleipur á kontrabassa,” segja þeir félagar Óttar og Hlynur.
Spila allir á öll hljóðfærin
„Við viljum helst allir geta spilað á öll hljóðfærin en svo fáum við af og til hjálp, til dæmis spilar enginn okkar á trommur og á plötunni fáum við trommara til liðs við okkur,” segja strákarnir allir þrír sem stefna greinilega langt. Þann 25. júlí kemur út fyrsta plata sveitarinnar en hún komst nýverið á samning hjá Gravitation Records í Bandaríkjunum. „Við syngjum bæði á íslensku og ensku. Sá sem hafði samband við okkur og sér um okkar mál úti sagði að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af því hvort við værum að syngja á íslensku eða ensku. Ef lagið yrði til á íslensku þá væri það bara íslenskt. Þetta snýst allt um tilfinninguna í laginu og til dæmis þá hét lagið „Snæfellsnes” fyrst „Snow Mountain Peninsula”. Núna er bara kjánalegt að syngja enska textann við lagið,” segja þeir félagar.
Eru til í að spila á árshátíð Snæfellsbæjar
Skyldu þeir hafa talið hversu oft þeir segja Snæfellsnes í laginu? „Nei við höfum nú reyndar ekki gert það, það er kannski tvisvar of oft,” segir Óttar og hlær. Texti lagsins fjallar um ferð sem að Hlynur fór í með félögum sínum upp á Snæfellsjökul þar sem þeir lentu í hremmingum. „Við fórum þarna upp á fjórhjóladrifnum Mitsubishi Space Wagon, sem var eini fjórhjóladrifni bíllinn sem við gátum útvegað okkur. Við fórum upp á jökulinn í snjóbrettaferð og það gekk vel að komast upp. Þegar við ætluðum svo að fara aftur niður sáum við að slóðinn sem við höfðum farið upp var ónýtur eftir umferð vélsleða. Við þurftum því að grafa nýja leið og það tók örugglega um fjóra tíma. Við vildum frekar redda okkur, vorum þokkalega vel búnir. Síðan gekk þetta svo illa að við ákváðum að hringja í björgunarsveit en þá vildi ekki betur til en svo að eini síminn sem við höfðum varð batteríslaus. Þá þurftum við bara að moka eða verða ella úti á jöklinum,” segir Hlynur.
Strákarnir segjast ekki hafa fengið nein bein viðbrögð frá Snæfellsnesi vegna lagsins en segjast vera meira en til í að kíkja á árshátíð Snæfellsbæjar. „Lagið myndi örugglega slá í gegn þar,”